7. febrúar 2012 Register | Innskrá
Þú ert hér: Grein  
BIM á Íslandi
18.03.2009

 Í nágrannalöndum okkar hefur í vaxandi mæli verið hugað að aðferðum til að minnka líkindi á mistökum í undirbúnings- og hönnunarferlinu. Verulegt skref í þessa átt er innleiðing á Byggingaupplýsingalíkani, BIM – Building Information Model, og einnig á Íslandi er í undirbúningi innleiðing á BIM. Almennur kynningarfundur um BIM, Nýsköpun í byggingariðnaði, var haldinn á vegum bakhjarla verkefnisins 17. desember 2008.


 Aðferðafræði BIM

Aðferðafræði BIM er nálgun sem sem einkennist af því að allir hlutaðeigandi aðilar verkefnis hafa samskipti með upplýsingar sem tengjast byggingarmálinu í sameiginlegu byggingaupplýsingalíkani. Möguleiki er á að hafa upplýsingar réttar á hverjum tíma og aðgengilegar í heildstæðu, rafrænu umhverfi sem gefur arkitektum, verkfræðingum og öðrum tæknimönnum, svo og verkkaupum, skýrt, sjónrænt yfirlit yfir öll verkefni þeirra og auk þess er unnt að flýta upplýstum ákvörðunum. BIM er notað á undirbúningsstigi, við hönnun, framkvæmd og mögulega við rekstur byggingarinnar. Skilgreindur er frá upphafi þáttur hvers aðila í ferlinu og eru gerðar mjög stífar kröfur varðandi uppsetningu og vinnulag. Með þessum markvissu vinnubrögðum mun hönnunarmistökum fækka svo um munar.

BIM byggir á hlutbundinni hönnun með gögnum um bygginguna. Það inniheldur mun fleiri gögn en eru  í venjulegu CAD líkani, inniheldur bygginguna í þrívíddarlíkani ásamt byggingarhlutum ásamt öðrum byggingartengdum gögnum. Aðilar þurfa að vinna með rafrænar, samkvæmar upplýsingar. Til að auka samhæfingu í BIM er þörf er á að nota opinn skráastaðal, svokallaðan IFC staðal, og fleiri viðeigandi viðmiðanir alþjóðasamtaka. 

 BIM í nágrannalöndunum

Hjá FSR hefur verið fylgst með þróun BIM á Norðurlöndum og víðar. Í samstarfi FSR við NKS (Nordisk Kontakt for Statsbygninger) er BIM til umfjöllunar og eru þessar systurstofnanir FSR leiðandi á sviði innleiðingar BIM í samstarfi við samtök um þróun á þessu sviði auk nokkurra einkaaðila. Danir eru komnir langt í þróun BIM og þar eru samstarfsaðilar Bips (Byggeri, informationsteknologi, produktivitet og samarbejde) og DDB (Det Digitale Byggeri). Í Danmörku voru árið 2007 lagðar til leiðbeiningar um þrívíddarlíkön sem innihalda meðal annars árekstrargát og fyrir liggur áætlun um áframhaldandi skref sem tekin verða á næstu árum við innleiðingu BIM, svo sem leiðbeiningar sem beinast að samstarfi og aðgangsstjórnun, flokkun og magnskrám, svo og vöru- og framleiðslulýsingum.

Innleiðing BIM á Íslandi

Á Íslandi var komið á fót Þróunarvettvangi á sviði mannvirkjagerðar á árinu 2007. BIM er eitt af verkefnum hans sem fyrirhugað er að vinna á þessum vettvangi. Framkvæmdasýsla ríkisins hefur haft frumkvæði að því að undirbúa verkefni til innleiðingar BIM á Íslandi. Fylgst hefur verið með þróun BIM í nágrannalöndunum, tekinn þáttur í kynningu á BIM hugbúnaði og sóttar ráðstefnur um BIM. FSR hefur hvatt aðila til samstarfs til að innleiða BIM á Íslandi.

Á árinu 2008 hefur fjögurra manna hópur að frumkvæði Framkvæmdasýslu ríkisins unnið markvist að innleiðingu á notkun byggingaupplýsingalíkanna (BIM) í mannvirkjagerð á Íslandi.  Hópinn hafa skipað Óskar Valdimarsson, Framkvæmdasýslu ríkisins, Hannes Frímann Sigurðsson, Orkuveitu Reykjavíkur, Guðni Guðnason, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Ámundi Brynjólfsson, Reykjavíkurborg - Framkvæmda- og eignasvið. Markmið hópsins er að stofna samstöðu meðal opinberra verkkaupa um notkun byggingaupplýsingalíkana í opinberum framkvæmdum með það fyrir augum að bæta gæði í hönnun og framkvæmdum og lækka líftímakostnað bygginga.

Framkvæmdasýslan sótti um og fékk styrk úr Íbúðarlánasjóði 4. september 2008 til að hefja verkefnið Innleiðing BIM á Íslandi. Verkefnið er í stórum dráttum eftirfarandi:

  • Kynna sér hvernig aðferðafræðin hefur verið innleidd á hinum Norðurlöndunum og víðar, eins og til dæmis í Bandaríkjunum.
  • Setja upp innleiðingaráætlun á Íslandi og vinna að henni í 3 ár
  • Halda kynningarfundi, námskeið og ráðstefnur til að vinna aðferðafræðinni fylgi

Vinna með stjórnvöldum í að móta staðla, leiðbeiningar og handbækur um BIM

Nýsköpunarmiðstöð Íslands var einnig veittur styrkur frá Íbúðarlánasjóði til verkefnisins Byggingaupplýsingalíkön – vefsetur fyrir menntun og símenntun hönnunarstétta.

Í desember 2008 var formlega stofnað verkefnið BIM-Ísland með þátttöku níu stofnanna sem fjárhagslegra bakhjarla. Það eru Brunamálastofnun, Fasteignir ríkissjóðs, Framkvæmdasýsla ríkisins, Íbúðalánasjóður Landsnet, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Framkvæmda- og eignasvið og Samtök iðnaðarins.

Áætlanir standa til að ráða starfsmann til að stýra verkefninu og er gert ráð fyrir að hann hefji störf þann 1. mars næstkomandi. Starfsmaðurinn mun vinna með stjórn verkefnisins að innleiðingu BIM og hafa frumkvæði um að kynna BIM aðferðafræðina fyrir byggingariðnaðinum, standa að námskeiðum og ráðstefnum ásamt því að aðstoða verkkaupa, hönnuði og framkvæmdaaðila sem taka upp BIM aðferðafræði í rekstri sínum.

 Nýsköpun í byggingariðnaði, kynningarfundur á vegum bakhjarla verkefnisins var haldinn 17. desember 2008,

 

 

print
Til Baka



  Ummæli

Forsíða  |  Fréttir  |  Greinar  |  BIM-Wiki
(c) 2009 Nýsköpunarmiðstöð Íslands   |  Privacy Statement  |  Terms Of Use