|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Notendahandbók - Gagnaskipti BIM / IFC 07.09.2011 Notendahandbókin um gagnasamskipti með BIM/IFC er unnið á grundvelli reynslu og samvinnu aðila innan IAI, einkum AK Haustechnik og Facility Management.
Þessi notendahandbók er sérstaklega ætluð til að efla upplýsingaflæði meðal þeirra sem koma að byggingu og rekstri mannvirkja. Þannig nást markmið verkefnis með því að tryggja gott skipulag og góð tæknileg samskipti. Markmiðið er að arkitektar, fulltrúar verkkaupa og byggingaryfirvalda, sem og umsjónarmenn verkefna, eigi auðvelt með að vinna markvisst saman með nútíma CAD-forritum, tölvuforritum fasteignaumsýslunnar (CAFM), greiningarforritum og öðrum hugbúnaðarverkfærum. Til þess er nauðsynlegt að tileinka sér grunnhugsun BIM (upplýsingalíkan) og IFC-líkans. Í því felst að þekkja möguleikana og að öðlast reynslu í að nota forrit sem samhæfast IFC-kerfinu. Í notendahandbókinni eru ráðleggingar varðandi þær upplýsingar sem þrívíddarlíkanið inniheldur og sent er milli samstarfsaðila. Lýsingar á byggingarhlutum og eiginleikum eru t.d. nauðsynlegar fyrir samstarf með BIM og IFC. Hönnunarteyminu er frjálst að skilgreina þessa hluti nánar, en getur notað þessa notendahandbók sem fyrirmynd að verkefnahandbók.  Til Baka
|
|
|
|
|
|
|
| Forsíða | Fréttir | Greinar | BIM-Wiki
|
|
| | |
|