BIM skilalýsingar01.07.2011
Eitt af markmiðum BIM Ísland verefnisins var að setja fram skilalýsingar fyrir BIM líkön til að samræma vinnubrögð og skilakröfur á markaðnum. 35 manna vinnuhópur úr röðum hönnuða og framkvæmda aðila tók þátt í vinnunni. Skilalýsingar frá Finnlandi, Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Bretlandi og Bandaríkjunum voru yfirfarnar með því markmiði að aðlaga þær að íslenskum aðstæðum. Niðurstaðan varð að finnska skilalýsingin frá Seenatti Properties varð fyrirvalinu. Vinnuhópurinn las yfir allar handbækurnar og lagði mat á nauðsynlegar breytingar og aðlaganir sem þyrfti að gera miðað við íslenskar aðstæður.Þessi skilalýsing er nú fáanleg í heildsinni hér að neðan.
Hafa ber í huga að skilalýsingin er kröfulýsing um hvað BIM líkan skal innihalda og hvernig því skuli skilað en ekki leiðbeiningarit um hvernig á að gerða BIM módel.
Stjórn BIM Ísland þakkar vinnuhópnum sem lagði mikla vinnu í þetta verkefni.
Til Baka