Íslenskt fyrirtæki nær athygli Progman Oy framleiðanda MagiCAD22.02.2010
Lagnatækni (www.lagnataekni.is) hefur frá árinu 2004 notað MagiCAD við hönnun lagna og loftræstikerfa. Á heimasíðu Program Oy framleiðanda MagiCAD er greint frá árangri Lagnatækni við gerð byggingarupplýsingalíkana (BIM) í ýmsum verkefnum hönnunar- og ráðgjafastofunnar (http://www.progman.fi/en/newsroom/projects).
Eitt af verkefnum Lagnatækni, sundlaugakerfi fyrir Sundlaug Kópavogs, er dæmi um hvernig hönnun í BIM getur auðveldað verktökum uppsetningu kerfa með því að sjá verkefnið í fullri þrívídd.
Á myndinni til vinstri sést BIM líkan sundlaugakerfisins eins og það var hannað í MagiCAD og til hægri ljósmynd af tækjaklefa eftir uppsetningu lagnakerfa.
Fjöldi hönnunarfyrirtækja á Íslandi hafa notað þrívíða hlutbundna hönnun í ýmsum verkefnum undanfarin ár. Á sömu vefsíðu Progman Oy er einnig fjallað um hönnun raflagna- Hita og vatnslagna- og loftræstikerfa Tónlistar og ráðstefnu hússins við Austurhöfnina sem hannað var af Ramböll Denmark í samstarfi við Mannvit Hf.
Til Baka