7. febrúar 2012 Register | Innskrá
Þú ert hér: Fréttagrein  
Fréttir og viðburðir
Senaatti-kiinteistöt í Finnlandi endurskoðar skilakröfur fyrir BIM “BIM-Guidelines”
09.02.2010

Senaatti-kiinteistöt í Finnlandi, systurstofnun Framkvæmdasýslu ríkisins hér á landi, hefur gert kröfur um skil á BIM líkönum, BIM/IFC fyrir nýbyggingar frá 1 október 2007 samkvæmt skilakröfum (BIM-Guidelines). Skilakröfurnar skilgreina m.a. hvaða líkönum skuli skilað, hvaða einingar þau skuli innhalda og með hvaða nákvæmni.  Að fenginni reynslu undanfarinna ára, stendur nú til að endurskoða skilakröfurnar. Það verður áhugavert að fylgjast með þróun skilakrafna Senaatti-kiinteistöt, en gera má ráð fyrir, að við endurskoðunina verði meiri áhersla lögð á líkön og aðrar upplýsingar sem henta til fasteignastjórnunar en var í fyrri útgáfunni og mun ítarlegi líkön í hönnunar- og framkvæmdaferlinu.

 Skilakröfur Senaatti-kiinteistöt frá því í september 2007 voru gefnar út á ensku. Heyrst hefur að Finnar séu óánægðir í garð nágranna sinna Noregs og Danmerkur sem gefið hafa út sínar BIM skilakröfur eingöngu á móðurmálinu sem muni ef til vill leiða til þess að Finnar hætti ensku útgáfunni. Þetta yrði áfall fyrir aðra þar sem Finnar hafa verið leiðandi við þróun og innleiðingu BIM og byggja t.d. Norðmenn skilakröfur sínar á þeim finnsku.

print
Til Baka



  Ummæli

    
Forsíða  |  Fréttir  |  Greinar  |  BIM-Wiki
(c) 2009 Nýsköpunarmiðstöð Íslands   |  Privacy Statement  |  Terms Of Use