7. febrúar 2012 Register | Innskrá
Þú ert hér: Fréttagrein  
Fréttir og viðburðir
Graphisoft og Tekla í samstarf
09.02.2010

Graphisoft og Tekla vinna saman að því að auka samþættingu milli arkitekta og burðaþols hönnunar. Samstarf milli Graphisoft og Trekla hefur verið virkt allt frá árinu 2006 sem gerði hugbúnaðarkerfunum mögulegt að vinna með samræmd byggingar líkön. Þessi tenging var með import/export aðgerðum sem gerði mögulegt að flytja hönnunar einingar úr ArchiCad beint yfir í Tekla Structures til burðaþols greiningar og tilbaka í ArchiCad með öllum tilheyrandi upplýsingum. Í grunninn var tengingin með venjulegum skrárflutningi milli kerfanna en að þessu sinni verður samvirkni kerfanna með öðrum hætti eða með samþættingu á verkferlum arkitekta og burðaþols hönnuða yfir hönnunar- og framkvæmdaferlið. Lausnin mun verð einstök hvað varðar fyrri lausnir og gera samvinnu hönnuða mun skilvirkari en nú þekkist. Samkvæmt Viktor Varknyi hjá Graphisoft er aðalmálið í samþættingu ekki samhæfni skráa, þar sem skipst er á skrám milli kerfa, heldur fyrst og fremst samhæfni verkferla til að nýta möguleika og kosti byggingarupplýsinga líkana BIM.

Samþætting ArchiCad og Tekla Structures byggir á opnum stöðlum Open BIM eða IAI-IFC. Nú er að sjá hvernig tæknilausnir í verkefninu þróast t.d. notkun líkanamiðlara (Model Servers). Eitt er víst að samstarfið styrkir notkun opinna staðla og frekara samstarf annarra hugbúnaðarframleiðenda ásamt þróun samþættra lausna sem spanna líftíma bygginga á komandi árum.

print
Til Baka



  Ummæli

    
Forsíða  |  Fréttir  |  Greinar  |  BIM-Wiki
(c) 2009 Nýsköpunarmiðstöð Íslands   |  Privacy Statement  |  Terms Of Use