7. febrúar 2012 Register | Innskrá
Þú ert hér: Fréttagrein  
Fréttir og viðburðir
BIM Ísland - Fyrirlestraröð næstu 3 fimmtudaga
02.06.2009

Fyrirlestraröð næstu 3 fimmtudaga milli 15:00 - 17:00

AÐGANGUR ÓKEYPIS   -  VINSAMLEGAST KYNNIÐ ÞÁTTTÖKU Á NETFANGIР  :  hi@bim.is

Fyrirlestraröðin

 
Fyrirlestur I - Orkuveituhúsinu - 4. júní 15:00-17:00


Farið verður yfir hugmyndafræðina á bak við BIM, munurinn á BIM og CAD skýrður og skoðað hvaða forrit geta útbúið BIM líkön. Farið verður yfir hvað er ekki BIM og reynt að skýra af hverju ekki. Munurinn á miðlægum upplýsingagrunni og skjalamiðuðum upplýsingagrunni skoðaður. Einnig verður farið lauslega yfir IFC samskiptastaðalin og útskýrt af hverju hann er svona merkilegur. Farið yfir kosti og ókosti þess að nota upplýsingalíkön, bæði fyrir arkitekta, verkfræðinga og verkkaupa. Endað verður á að fara yfir hvernig best er að innleiða BIM, hvað þarf að vera til staðar og hvernig er best að vinna það.

Fyrirlestur II - Höfðatorgi, Vindheimum 7. hæð - 11. júní 15:00-17:00


Farið verður yfir fyrstu skrefin á uppsetnningu og notkun á BIM líkani, skoðað verður Danski BIPS staðallinn og litið á hvernig aðrir eru að byggja upp sín líkön. Einnig verður farið lauslega yfir IFC samskiptastaðalin. Farið yfir kosti og þess að nota upplýsingalíkön. Endað verður á að fara yfir hvernig best er að innleiða BIM, hvað þarf að vera til staðar og hvernig er best að vinna það.

Fyrirlestur III - Höfðatorgi, Vindheimum 7. hæð - 18. júní 15:00-17:00


Farið verður yfir kosti aðferðafræðinnar og ástæður fyrir notkun á upplýsingalíkani. Skoðaðir möguleikar sem opnast, t.d. tengingar við forrit sem reikna orkunotkun mannvirkja og hvaða umhverfisáhrif bygging
getur valdið. Einnig verður skoðað möguleikar við að skila BIM líkönum í villuleitarforrit sem byggingarfulltrúar víða um heim eru að koma sér upp og farið yfir hverskonar gæðastýring þarf að vera til staðar. Kíkt verður á uppbyggingu á einföldum líkönum í nokkrum mismunandi forritum og
samskipti á IFC formi skoðuð. Einnig verður villuleitarforrit skoðað.
Reynt verður að kynna sér möguleika sem komnir eru varðandi hermilíkön, þar sem byggingar-framkvæmdin er skoðuð yfir tíma. Jafnel verður eignaumsýslu forrit skoðuð ef tími vinnst til.
Ný alþjóðleg samkeppni um Þjóðminjasafn Noregs, þar sem skilyrði er að skilað sé á BIM formi, verður einnig skoðuð.
 

print
Til Baka



  Ummæli

    
Forsíða  |  Fréttir  |  Greinar  |  BIM-Wiki
(c) 2009 Nýsköpunarmiðstöð Íslands   |  Privacy Statement  |  Terms Of Use