7. febrúar 2012 Register | Innskrá
Þú ert hér: Fréttagrein  
Fréttir og viðburðir
Hvað getur BIM - Fundur haldinn í Höfðatorgi, Borgartúni 12-14, Föstudaginn 22. maí 2009, Kl.:15:00
19.05.2009

AÐGANGUR ÓKEYPIS   -  VINSAMLEGAST KYNNIÐ ÞÁTTTÖKU Á NETFANGIР  :  hi@bim.is

Farið verður yfir kosti aðferðafræðinnar og ástæður fyrir notkun á upplýsingalíkani. Skoðaðir möguleikar sem opnast, t.d. tengingar við forrit sem reikna orkunotkun mannvirkja og hvaða umhverfisáhrif bygging
getur valdið. Einnig verður skoðað möguleikar við að skila BIM líkönum í villuleitarforrit sem byggingarfulltrúar víða um heim eru að koma sér upp og farið yfir hverskonar gæðastýring þarf að vera til staðar. Kíkt verður á uppbyggingu á einföldum líkönum í nokkrum mismunandi forritum og
samskipti á IFC formi skoðuð. Einnig verður villuleitarforrit skoðað.
Reynt verður að kynna sér möguleika sem komnir eru varðandi hermilíkön, þar sem byggingar-framkvæmdin er skoðuð yfir tíma. Jafnel verður eignaumsýslu forrit skoðuð ef tími vinnst til.
 

Ný alþjóðleg samkeppni um Þjóðminjasafn Noregs, þar sem skilyrði er að skilað sé á BIM formi, verður einnig skoðuð.
 

print
Til Baka



  Ummæli

    
Forsíða  |  Fréttir  |  Greinar  |  BIM-Wiki
(c) 2009 Nýsköpunarmiðstöð Íslands   |  Privacy Statement  |  Terms Of Use