BIM Ísland
Á undanförnu ári hefur fjögurra manna hópur að frumkvæði Framkvæmdasýslu ríkisins unnið markvist að innleiðingu á notkun byggingaupplýsingalíkanna (BIM) í mannvirkjagerð á Íslandi, Hópinn hafa skipað:
Óskar Valdimarsson, Framkvæmdasýslu ríkisins
Hannes Frímann Sigurðsson, Orkuveitu Reykjavíkur
Guðni Guðnason, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Ámundi Brynjólfsson, Reykjavíkurborg - Framkvæmda- og eignasvið
Markmið hópsins var að stofna samstöðu meðal opinberra verkkaupa um notkun byggingaupplýsingalíkana í opinberum framkvæmdum með það fyrir augum að bæta gæði í hönnun og framkvæmdum og lækka líftímakostnað bygginga.
Í desember var formlega stofnað verkefnið BIM-Ísland með þátttöku níu stofnanna sem fjárhagslegra bakhjarla.
Stjórn verkefnisins skipa:
Óskar Valdimarsson, Framkvæmdasýslu ríkisins
Hannes Frímann Sigurðsson, Orkuveitu Reykjavíkur
Guðni Guðnason, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Rúnar Gunnarsson, Reykjavíkurborg - Framkvæmda- og eignasvið
Vigfús Halldórsson, Fasteignir ríkissjóðs
Ráðinn var verkefnisstjóri Haraldur Ingvarsson arkitekt sem hóf störf 1. mars 2009. Hann mun vinna með stjórn verkefnisins að innleiðingu BIM og hafa frumkvæði um að kynna BIM aðferðafræðina fyrir byggingariðnaðinum, standa að námskeiðum og ráðstefnum ásamt því að aðstoða verkkaupa, hönnuði og framkvæmdaaðila sem taka upp BIM aðferðafræði í rekstri sínum.
Unnið verður eftir þriggja ára innleiðingaráætlun 2009-2011 sem nú er í mótun og tekur mið af reynslu annara landa sem nú þegar hafa sambærilega stefnu um innleiðslu BIM t.d. Dannmörk, Finnland, Noregur og Bandaríkin.
Að verkefninu BIM-Ísland standa eftirfarandi stofnanir:
Brunamálastofnun, Fasteignir ríkissjóðs, Framkvæmdasýsla ríkisins, Íbúðalánasjóður Landsnet, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Framkvæmda- og eignasvið og Samtök iðnaðarins.